MAXXIS ARCTICTREKKER NP3, neglt

Maxxis Arctictrekker NP3 er neglt vetrardekk með mikinn fjölda bylgjulaga flipa í nýju munstri sem grípur einstaklega vel á ís og hreinsar sig vel í blautum snjó og slabbi. Nákvæm dreifing naglagatanna og samsetning gúmmíblöndunnar þýðir mjög góða aksturseiginleika og frábært grip á ís. Með Maxxis Arctictrekker NP3 undir bílnum færðu frábært vetrargrip, góða vatnslosun og hljóðlátt dekk. Ef þig vantar ódýrt og gott dekk með góðu átaks og hemlunargripi á ís og í snjó þá er vert að skoða Maxxis Arctictrekker NP3.